*Kjánahrollur*

Við erum svo lítil og hallærisleg!!! Það verður allt brjálað þegar einhver tekur eftir okkur. Við fyllumst svo mikils stolts þegar það kemur ein lítil bloggfærsla um hann Pál Óskar á einhverri rusl slúðursíðu úti í heimi! Mér finnst þetta barasta ekki svo fréttnæmt. Sérstaklega þegar það er verið að vitna í einhverja venjulega einstaklinga úti í bæ sem commentuðu við þessa umtöluðu færslu.

Svo flykkjast allir íslendingar á þessa slúðursíðu, og láta í sér heyra! Það er nú bara hlegið að okkur við svona aðstæður. Hvernig er hægt að taka mark á manneskju sem getur ekki einu sinni tjáð sig almennilega á ensku. "Hey you stupid americans peapul this is Páll Óskar he is verry good yes he is famos in Island and we like him all yes so dont talk bed about him he is the best gay on the world!" HÆTTIÐ plís... Fólk er að missa sig úr hlátri út af ykkur. Talandi um að halda stolti.... guð minn almáttugur ég skammast mín fyrir að vera frá Íslandi þegar ég les þessi komment. Það er öllum sama þó þið skrifið "greetings from icelandic girls!!!" Svo er ekki hægt að segja "you americans!" því ameríkanar eru jafn misjafnir og þeir eru margir. Svo einfalt er það nú bara. Ekki eins og þeir lesi allir þetta blogg...

 

Týpískir íslendingar.... gera úlfalda úr mýflugu. Breytum neikvæðri gagnrýni í jákvæða og öfugt.

Mér líður svona pínu eins og þegar ég var að vinna á veitingastað/café/bar og við áttum svona mjög skemmtilegan fastagest. Hann kom á hverju kvöldi og hellti sig fullann, var búinn að vera að slá mér gullhamrana í nokkra mánuði. Mér var alveg sama. Maðurinn var fullur, og ég hló bara. Sagði honum að setjast niður með sinn drykk, og hunsaði hann þess á milli. Ég ætti nú ekki annað eftir en að fara að pirra mig á fullum kalli! Svo byrjaði stelpa að vinna með mér, sem tók þessari "viðreynslu" eins og heimurinn væri að farast. "HEYRÐU GÓÐI, ÞÚ KALLAR MIG EKKERT ELSKU!!!" sagði hún MJÖG hátt, og passaði að það væru að minnsta kosti 10 manns að horfa, bara svo að þeir vissu að  það væri verið að reyna við sig. "JÁ FARÐU! ÉG HRINGI Á LÖGREGLUNA EF ÞÚ HELDUR ÞESSU ÁFRAM!!!" og á meðan stóð ég hlæjandi út í horni með kjánahroll, og maðurinn svo hissa að það nánast rann af honum. Þetta gerði hún allt til að vekja á sjálfri sér athygli.

Nú stend ég aftur hlæjandi úti í horni. Hlæjandi af fólkinu sem kommentaði á þessa síðu, bara til að vekja á sjálfu sér athygli, sem það fær síðan bara neikvætt til baka. Það nennir ekki einu sinni neinn af þessum "ameríkönum" að lesa þessi komment. Þeir sjá bara "proud icelandic girl", hlæja og lesa næsta komment.

Ég veit ekki alveg hvernig ég á að útskýra... vona að einhver skilji mig. Ég fékk allavega pínu útrás við það að skrifa þetta!

 

world-map

 Í guðs bænum. Þarna erum við, litla landið. Sjáið öll hin löndin, hvað þau eru stór. Ekki skemma þetta litla stolt sem við höfum.


mbl.is Páll Óskar á frægustu slúðursíðu heims
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Eitt orð... SAMMÁLA!!!

Heimir (IP-tala skráð) 21.7.2007 kl. 12:38

2 identicon

Þetta er nú ekki beint einhver rusl síða. Ein vinsælasta slúðursíða í heiminum í dag.

Þorsteinn (IP-tala skráð) 21.7.2007 kl. 13:40

3 identicon

Þorsteinn, allt slúður er rusl, aldrei gleyma því.

Valur Z (IP-tala skráð) 21.7.2007 kl. 14:50

4 Smámynd: halkatla

ég sá þetta á síðunni fyrir nokkru en hafði ekki hugmynd um að þetta væri Páll Óskar! Nú sé ég eftir því að hafa ekki skoðað betur, en þá er bara best að skottast þangað og kíkja, þetta er náttúrulega mjög stórkostlegt mál

þó að ég sé sammála þér um þessi komment... úff, eru þau svona slæm? en íslendingar hafa húmor fyrir sjálfum sér, það er fínt. 

halkatla, 21.7.2007 kl. 15:35

5 identicon

Hehe já ég hvet þig til að skoða betur þessi komment. Þori reyndar að veðja að þetta voru bara einhverjar litlar gelgjur.. en samt sem áður.... þá fór þetta í mínar fínustu, og ég er ekkert endilega að tala um þetta dæmi, heldur bara þegar þetta gerist yfir höfuð. Þegar íslendingar taka comment og gera svona mikið úr því. Þetta var mjög áberandi í kringum Silvíu Nótt t.d. Á öllum svona "forums" og erlendum bloggum þar sem minnst var á Silvíu, voru oftar en ekki amk 10 manneskjur sem sögðu "Hey! I'm from Iceland and Silvia Night is very popular here!!! I love her!!! Silvia Night, you are my hero!!!". þetta virkar svona eins og fólk leiki sér að því að taka hluti nærri sér :) Bara til að fá athygli

Birna Magg (IP-tala skráð) 21.7.2007 kl. 20:00

6 Smámynd: Morðingjaútvarpið

"hey you do'nt understand it is making fun of tipical pop videos, paul oscar was in idol and hes very very talented, you stupid american"

Alveg hryllilegt

Skemmtilegt vídeó samt 

Morðingjaútvarpið, 22.7.2007 kl. 02:53

7 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Svona svona.  Gott samt að þú fékkst útrás

Jóna Á. Gísladóttir, 22.7.2007 kl. 11:33

8 identicon

Hehe já  videoið er gott og Páll Óskar er snillingur.... það er önnur saga

Og jújú, ég fékk mína útrás.

Birna (IP-tala skráð) 22.7.2007 kl. 13:38

9 identicon

Ha ha ha !!

Guðrún B. (IP-tala skráð) 22.7.2007 kl. 13:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband