Færsluflokkur: Vefurinn

*Kjánahrollur*

Við erum svo lítil og hallærisleg!!! Það verður allt brjálað þegar einhver tekur eftir okkur. Við fyllumst svo mikils stolts þegar það kemur ein lítil bloggfærsla um hann Pál Óskar á einhverri rusl slúðursíðu úti í heimi! Mér finnst þetta barasta ekki svo fréttnæmt. Sérstaklega þegar það er verið að vitna í einhverja venjulega einstaklinga úti í bæ sem commentuðu við þessa umtöluðu færslu.

Svo flykkjast allir íslendingar á þessa slúðursíðu, og láta í sér heyra! Það er nú bara hlegið að okkur við svona aðstæður. Hvernig er hægt að taka mark á manneskju sem getur ekki einu sinni tjáð sig almennilega á ensku. "Hey you stupid americans peapul this is Páll Óskar he is verry good yes he is famos in Island and we like him all yes so dont talk bed about him he is the best gay on the world!" HÆTTIÐ plís... Fólk er að missa sig úr hlátri út af ykkur. Talandi um að halda stolti.... guð minn almáttugur ég skammast mín fyrir að vera frá Íslandi þegar ég les þessi komment. Það er öllum sama þó þið skrifið "greetings from icelandic girls!!!" Svo er ekki hægt að segja "you americans!" því ameríkanar eru jafn misjafnir og þeir eru margir. Svo einfalt er það nú bara. Ekki eins og þeir lesi allir þetta blogg...

 

Týpískir íslendingar.... gera úlfalda úr mýflugu. Breytum neikvæðri gagnrýni í jákvæða og öfugt.

Mér líður svona pínu eins og þegar ég var að vinna á veitingastað/café/bar og við áttum svona mjög skemmtilegan fastagest. Hann kom á hverju kvöldi og hellti sig fullann, var búinn að vera að slá mér gullhamrana í nokkra mánuði. Mér var alveg sama. Maðurinn var fullur, og ég hló bara. Sagði honum að setjast niður með sinn drykk, og hunsaði hann þess á milli. Ég ætti nú ekki annað eftir en að fara að pirra mig á fullum kalli! Svo byrjaði stelpa að vinna með mér, sem tók þessari "viðreynslu" eins og heimurinn væri að farast. "HEYRÐU GÓÐI, ÞÚ KALLAR MIG EKKERT ELSKU!!!" sagði hún MJÖG hátt, og passaði að það væru að minnsta kosti 10 manns að horfa, bara svo að þeir vissu að  það væri verið að reyna við sig. "JÁ FARÐU! ÉG HRINGI Á LÖGREGLUNA EF ÞÚ HELDUR ÞESSU ÁFRAM!!!" og á meðan stóð ég hlæjandi út í horni með kjánahroll, og maðurinn svo hissa að það nánast rann af honum. Þetta gerði hún allt til að vekja á sjálfri sér athygli.

Nú stend ég aftur hlæjandi úti í horni. Hlæjandi af fólkinu sem kommentaði á þessa síðu, bara til að vekja á sjálfu sér athygli, sem það fær síðan bara neikvætt til baka. Það nennir ekki einu sinni neinn af þessum "ameríkönum" að lesa þessi komment. Þeir sjá bara "proud icelandic girl", hlæja og lesa næsta komment.

Ég veit ekki alveg hvernig ég á að útskýra... vona að einhver skilji mig. Ég fékk allavega pínu útrás við það að skrifa þetta!

 

world-map

 Í guðs bænum. Þarna erum við, litla landið. Sjáið öll hin löndin, hvað þau eru stór. Ekki skemma þetta litla stolt sem við höfum.


mbl.is Páll Óskar á frægustu slúðursíðu heims
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband